listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og ég held að við getum verið sammála um mjög margt í þessu. Vinnan varðandi hagsæld og lífsgæði gekk einmitt út á þetta, að búa til þessa mælikvarða og það sáust merki þess í síðustu fjármálaáætlun. Ég er algerlega sammála hv. þingmanni að það þarf að sjá merki þess í komandi fjármálaáætlun að verið sé að fylgja eftir þessum vísum sem við höfum sett okkur og það þarf að fara fram regluleg mæling á þessu, alveg eins og þessi nefnd lagði áherslu á sem ég vísaði til hérna áðan og tók þátt í, þar sem við sjáum hvort við séum að fara upp í þessum markmiðum eða ekki. Og mér sýndist í fljótu bragði að það sem hv. þingmaður nefndi varðandi menntunarstig, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og svo húsnæðismálin sé allt inni í þessum 39 mælikvörðum sem þarna voru settir niður. En ég var kannski bara að reyna að sjá hvort það væri einhver hugmynd að annars konar mælikvarða inni í þessum vísum sem tengist beint því sem við erum að fjalla um hér, sem eru listamannalaun og þá fjölgun starfandi listamanna. En ég bara ítreka að þessi vinna er þegar farin að sjást, þ.e. Stjórnarráðið er þegar farið að taka mið af þessari vinnu og við sáum það í síðustu fjármálaáætlun og við þurfum að sjá það áfram. Ég fagna því að við getum hér sameinast í þessum sal um að veita ríkisstjórninni ákveðið eftirlit hvað það varðar að vinna áfram með þessar hugmyndir því ég held að þær skipti mjög miklu máli og einmitt að við höfum þessa mælikvarða. Ég vil jafnframt ganga það langt að við getum jafnvel brotið þessa mælikvarða niður út frá landshlutum, út frá aldri, út frá kyni og öllum þessum þáttum því það er einmitt það sem mun hjálpa okkur til að fara í sértækar aðgerðir ef þeirra er þörf.