listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég held að við höfum kannski verið að tala svolítið um sitthvorn hlutinn vegna þess að ég var að tala um hvernig mér finnst að þessum mælikvörðum eigi að vera beitt og öðruvísi heldur en þeim er beitt, sem mér finnst vera eftir á. Við erum með einhverjar mælieiningar. Við tökum einhverjar ákvarðanir. Við sjáum eftir á hvernig þessar ákvarðanir hafa áhrif á þessar mælieiningar. Við erum ekki að hugsa um að taka ákvarðanir með það að markmiði að hækka upp þessa mælieiningar, ef ég reyni að útskýra þetta á eins einfaldan hátt og ég get. Það sama er með t.d. kynjasjónarmiðin, það er einhvern veginn ekki hugsað fyrir fram: Hvernig getum við farið í efnahagsaðgerðir sem auka jafnrétti kynjanna? Mér er mjög minnisstætt t.d. með fyrsta efnahagspakka ríkisstjórnarinnar í Covid þar sem langstærstur hlutinn fór í steypu og malbik, í alls konar vegauppbyggingu og mannvirki og ýmislegt slíkt sem við gagnrýndum á sínum tíma fyrir að vera mjög karlmiðuð efnahagsaðgerð. Þarna eru það bara karlar að langstærstum hluta sem munu fá í raun þessa peninga í gegnum þessa uppbyggingu. Þetta er mjög oft staðan líka í fjárlagagerðinni. Fjárlög eru sett og síðan er eftir á talað um að þau hafi svona og hinsegin áhrif á kynjajafnrétti. En það er ekki fyrir fram ákveðið og sagt: Við ætlum að beita þessum fjárlögum þannig að við ætlum að passa að þau hafi a.m.k. jöfn áhrif á kynin, jafnvel að reyna að ýta undir jafnrétti kynjanna. Þetta er alltaf einhvers konar mat eftir á. Það er það sem ég var að gagnrýna við velsældarvísana, þeir eru ekki notaðir sem fyrirframmarkmiðasetning heldur eru notaðir sem einhvers konar eftirámatstæki á því hvaða áhrif lagasetning hefur, þeir eru ekki leiðandi við gerð áætlananna.
Hvað varðar aðra mælikvarða, vegna þess að hv. þingmaður spurði út í það, þá finnst mér mjög mikilvægt að hreint umhverfi og að baráttan gegn loftslagsvánni sé hluti af þessum mælikvörðum og mjög mikilvægt að koma þeim á fót og sömuleiðis þá finnst mér að listir, (Forseti hringir.) það að geta notið lista og menningar sé auðvitað líka gríðarlega mikilvægur mælikvarði á gæði samfélags.