152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[16:51]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér um breytingu á lögum um listamannalaun. Ég held að við þurfum ekkert að deila um það í þessum sal að listin er mikilvæg sem og listamenn. Hér erum við að tala um mjög gott markmið, að styðja sviðslistafólk og tónlistarflytjendur sérstaklega sem urðu fyrir barðinu á Covid-takmörkunum. Það er kannski sú athugasemd eða fyrirvari sem ég og við í þingflokki Sjálfstæðisflokksins gerum við frumvarpið. Við segjum: Markmiðið er gott, að reyna að mæta þeim, eins og höfum gert í gegnum allan faraldurinn, sem urðu fyrir skaða af þeim takmörkunum sem hið opinbera setti. Því finnst okkur ekki nógu skýrt þegar hér er verið að leggja til að fjármögnunin komi til á árinu 2022 í gegnum úthlutunarkerfi á eitthvað sem er fram undan, þannig er kerfið byggt upp, en núna á að fara að útdeila auknum listamannalaunum á árinu 2022 þegar búið er að aflétta öllum takmörkunum vegna Covid. Það skiptir miklu máli þegar þetta er gert að þessir fjármunir sem við erum að leggja til hér fari þá raunverulega í að hjálpa þeim sem ekki hafa nú þegar getað nýtt sér önnur opinber úrræði og að þetta þá mæti þeim sem sannarlega urðu fyrir skerðingum og tekjutapi út af þeim aðgerðum sem stjórnvöld stóðu fyrir. En markmiðið er gott og við styðjum frumvarpið í grunninn, að það sé létt undir með þessum hópum eins og öðrum hópum sem létt hefur verið undir með út af Covid.

Ég vil líka nefna að listamannalaunin, þar sem verið er að fjárfesta í menningu og listum og skapandi greinum, eru gríðarlega mikilvæg. Það er líka ánægjulegt sem ég sé í frumvarpinu, en ég spyr aftur: Hvernig tengist það — við erum að bæta tjón sem varð út af takmörkunum — að verið sé að horfa sérstaklega til ungs fólks, fá nýtt fólk inn? Ég styð það í sjálfu sér. Því langaði mig líka í þessari stuttu ræðu minni um þetta mál að upplýsa um það, til þess m.a. að ná þessum markmiðum og setja meiri fókus á að hjálpa nýju og ungu listafólki að komast af stað með sína list og koma undir sig fótunum í því að starfa sem listamenn, að ég hyggst leggja fram frumvarp um að heiðursmannalistamannalaun verði lögð niður. Að lög um heiðursmannalistamannalaun verði felld á brott. Ég tel þau mögulega hafa átt rétt á sér hér áður fyrr, en nú hafa tímarnir breyst og annað slíkt og tel ég því rétt að setja meiri fókus á þessa nýju, ungu, skapandi listamenn. En varðandi heiðursmannalistamannalaunin þá má heiðra þá sem hafa gert vel fyrir íslenska þjóð og við getum fundið einhverjar aðrar leiðir til þess en að borga þeim heiðursmannalistamannalaun sem eru þá líka takmarkandi auðlind af því að það eru bara 25 manns á ári sem fá þau en það eru miklu fleiri listamenn á Íslandi sem standa sig vel og annað slíkt. Þannig að ég ætla bara að nefna það hér. Við tökum þá umræðu betur þegar það frumvarp verður fram komið.