152. löggjafarþing — 56. fundur, 24. mars 2022.
listamannalaun.
408. mál
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og hreinskilnina. Er það rétt skilið að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hafi sett fyrirvara við þetta mál hæstv. menningarmálaráðherra? Og er það þá rétt skilið að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins geri það að skilyrði að því verði breytt í nefndinni, að það sé skilyrði fyrir því að þingflokkurinn samþykki málið að þeir sem sæki um þessa styrki sýni fram á augljóst tekjufall? Skildi ég orð hv. þingmanns rétt?