152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[16:57]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég skil eiginlega ekki alveg hvað hv. þingmaður á við. Á hann við að listamenn sitji við sama borð og aðrir sem urðu fyrir tekjufalli, eða erum við að tala um að þeir listamenn sem urðu fyrir tekjufalli eigi þá möguleika á að sækja um þessi starfslaun? Þá vil ég spyrja hv. þingmann aðeins út í skilning hans á heiðurslaunum listamanna, sem hefur venju samkvæmt verið sérstaklega úthlutað þeim sem hafa átt mjög farsælan feril, aukið hróður landsins innan lands sem utan en eru alla jafna komnir af léttasta skeiði, að draga saman seglin. Telur hv. þingmaður að við eigum að hætta að veita þeim ákveðnar þakkir fyrir þeirra störf áratugum saman í þágu íslenskrar þjóðar?