listamannalaun.
Frú forseti. Ég hjó eftir því að hv. þingmaður sagðist ætla að leggja fram frumvarp sem myndi afnema heiðurslaun listamanna en eftir því sem ég kemst næst og man þá hafði a.m.k. meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar gefið það út að hann ætlaði að endurskoða þetta fyrirkomulag. Ég velti því bara fyrir mér hvort hann hafi ekki trú á því ferli sem þar er í gangi. Það var ákveðið að úthluta ekki lausum plássum á þessum lista núna fyrir jól einmitt vegna þess að til stæði að endurskoða þetta fyrirkomulag. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmanni finnist tilefni til þess að grípa inn í þá endurskoðun, hvort hann hafi áhyggjur af því að hún verði ekki gerð með fullnægjandi hætti eða hvort hann hafi einfaldlega aðrar hugmyndir heldur en hv. allsherjar- og menntamálanefnd um hvernig eigi að leiða þetta mál til lykta. Þá er ég að vísa í meiri hluta hv. allsherjar- og menntamálanefndar.