152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:01]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég var að lýsa minni persónulegu pólitísku skoðun á heiðurslaunum listamanna eins og ég hef gert frá því ég kom inn á Alþingi í apríl 2013. Það hefur alltaf legið ljóst fyrir að ég hef ekki verið stuðningsmaður þeirra. Ég er að boða það að ég ætli að setja þá umræðu hér á dagskrá með þessu frumvarpi og sjá hvort það sé meiri hluti fyrir því að gera það. Þá er ég að tala um allt þingið, ég er ekki að tala um ríkisstjórnarflokkana, þetta mun ekki verða stjórnarfrumvarp, enda er ég ekki í ríkisstjórn, þannig að það sé sagt. Ég hef fulla trú á allri allsherjar- og menntamálanefnd og að þau komist að niðurstöðu um það kerfi sem við búum við í dag. Það eru lög um þetta í dag og allsherjar- og menntamálanefnd er með það verkefni að finna út úr því hvernig við framfylgjum þeim lögum á meðan þeim er ekki breytt eða eru ekki felld brott. Ég hef fulla trú á þeirri vinnu sem þar er og fylgist með hvernig hún gengur og svo kemur bara í ljós hvort frumvarp mitt nær fram að ganga á undan því. Það verður bara að koma í ljós.