listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég sé að hv. formaður allsherjar- og menntamálanefndar er hérna í salnum þannig að hún leiðréttir mig ef ég skildi þetta rangt hérna fyrir jól. En minn skilningur var, og það var eftir að hafa lesið færslu frá hv. þm. Jódísi Skúladóttur sem á einmitt sæti í allsherjar- og menntamálanefnd, að það væri verið að skoða lagabreytingar á þessu fyrirkomulagi. Það er nú þess vegna sem ég spyr hv. þingmann, vegna þess að mér finnst hann svolítið vera að grípa fram fyrir hendurnar á allsherjar- og menntamálanefnd sem er með þetta mál til skoðunar. Nú er ég ekki sammála hv. þingmanni um að það eigi að leggja þetta niður en mér finnst hann ganga svolítið að því sem vísu að allsherjar- og menntamálanefnd, þ.e. meiri hluti hennar, sé þá heldur ekki sammála sér. Ég velti fyrir mér hvort það sé réttur skilningur, hvort hann hafi kannað í raun vilja meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar til breytinga í þessum efnum vegna þess að mögulega er bara samhljómur þarna á milli. Annaðhvort er nefndin og hv. þingmaður sammála eða ósammála um hvernig þetta eigi að fara og ég er bara að velta fyrir mér hvort það er.