listamannalaun.
Virðulegur forseti. Ég hef ekki kannað það formlega hjá öllum í meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar hvort þau séu sammála mér í því að það eigi að afnema lög um heiðurslaun listamanna og ég get alveg sagt það að ég býst heldur ekki við því að allir í þeim meiri hluta séu sammála mér um það, ég býst alls ekki við því. Það byggi ég nú bara, eins og ég sagði áðan, á að verða níu ára reynslu minni hér á Alþingi þannig að ég legg þetta mál sjálfstætt fram, þetta er mín pólitíska skoðun og hún er búin að vera það frá því að ég kom fyrst inn í sal Alþingis og ég hef oft tjáð hana hér áður.