152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:05]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ef ég skil hann rétt þá er hann og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins með einhvers konar fyrirvara við þetta mál. Mig langar bara að heyra frá hv. þingmanni hvað það er aðallega sem honum finnst að þessu frumvarpi. Hvar liggja gallarnir í því? Það er auðvitað alveg ljóst að þetta frumvarp er í algjörum grundvallaratriðum, ólíkt þeim þingmálum sem lúta að almennum stuðningsaðgerðum fyrir atvinnulífið þar sem er miðað við ákveðið tekjufall o.s.frv. Hér er verið að horfa til þess að styrkja launasjóði listamanna og það fer eftir ákveðnum úthlutunarreglum þar sem er ekki tekið á nokkurn hátt mið af tekjufalli. Ef það er það sem hv. þingmaður er óánægður með þá er hann í rauninni, ef ég skil hann rétt, að kalla eftir allt, allt öðru frumvarpi. En mér þætti fróðlegt að heyra aðeins betur hvað það er sem truflar Sjálfstæðismenn í þessu máli.