listamannalaun.
Virðulegur forseti. Það sem ég og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins höfum nefnt varðandi þetta mál er hvað við vildum að yrði tekið inn í umræðuna hér í þessu máli. Það var fullt af sviðslistafólki og tónlistarflytjendum sem urðu fyrir miklum áhrifum vegna Covid og Covid-takmarkana og því er þetta frumvarp komið fram um einmitt þessa tvo flokka listamanna — það eru miklu fleiri flokkar undir listamannalaunum, en það er búið að taka þessa tvo flokka af því að þeir urðu fyrir þessum áhrifum. Við vildum bara nefna að það yrði horft til þess hvort það væri hægt við úthlutun á þessum fjármunum, af því að það er talað um reglugerðarbreytingu og annað slíkt, að horfa til þeirra sem hafa annaðhvort ekki fengið tjón sitt bætt með öðrum úrræðum eða hafa augljóslega orðið fyrir afleiðingum af Covid-takmörkunum.