152. löggjafarþing — 56. fundur, 24. mars 2022.
listamannalaun.
408. mál
Virðulegur forseti. Við styðjum algerlega markmið þessa frumvarps og það er að hjálpa sviðslistafólki og tónlistarflytjendum, styðja þá og setja aukinn stuðning þangað inn vegna þeirra áhrifa sem Covid hafði. Ég treysti fyllilega allsherjar- og menntamálanefnd að taka þessa umræðu og sjá, við vinnslu þessa máls, hvort það sé hægt að mæta þeim sem vissulega urðu fyrir tekjufalli í sínum listamannastörfum vegna þessara takmarkana.