152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:19]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hef tekið eftir því að þingmönnum stjórnarandstöðunnar finnst einmitt mjög áhugavert að spyrja út í fyrirvara í einstökum þingflokkum. Ég get ekki svarað því nákvæmlega hverjir fyrirvararnir eru en það er, eins og hv. þingmaður þekkir mjög vel, alls ekki óalgengt og jafnvel frekar algengt að einstaka þingmenn hafi annaðhvort almenna fyrirvara við einhver frumvörp eða mjög ákveðna fyrirvara við frumvarpið.

Þingmálið var samþykkt út úr ríkisstjórnarflokkunum til þess einmitt að koma hér inn í þinglega meðferð. Ég segi fyrir mitt leyti að ég gerði ekki fyrirvara við málið og geri það svo sem ekkert mjög oft. Það er auðvitað þannig að við öll hér, hvort sem við sitjum í stjórn eða stjórnarandstöðu, fáum málið til umfjöllunar, fáum fjöldann allan af athugasemdum og ábendingum utan úr bæ og það er það sem gerir það að verkum að oft taka stjórnarmál umtalsverðum breytingum. Mér finnst það sýna ákveðið vægi og hlutverk lýðræðisins í þinglegri meðferð. Hér áður fyrr var einmitt rætt um það að þingið væri svolítill stimpilpúði á mál frá einstaka ráðherrum en sú hefur alls ekki verið raunin frá því að ég tók sæti á þingi. Það er mjög algengt að við breytum málum umtalsvert. En nú er ég að tala almennt, hv. þingmaður, ekki um þetta frumvarp sem hér er heldur bara almennt um fyrirvara.

Hv. þm. Vilhjálmur Árnason lýsti sínum fyrirvara áðan og það voru örugglega fleiri sem tóku undir það. Ef ég skildi umræðuna rétt þá voru ákveðnar áhyggjur af því hvort þetta frumvarp gæti falið það í sér að við værum að bæta einhverjum upp tap sem þegar hefðu fengið bætur í gegnum aðrar leiðir en á sama tíma væru mögulega einhverjir að falla milli skips og bryggju. Það hafa verið nefndar hér í ræðu áhyggjur af þeim sem starfa á bak við tjöldin. Ég er ekki viss um að við getum í umfjöllun um þetta mál leyst það heildstætt en það gæti vissulega vakið upp umræðu um þann málaflokk.