152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:26]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Frumvarpið sem við ræðum hér felur í sér að 200 mánaðarlaun koma til viðbótar þeim starfslaunum fyrir árið 2022 sem úthlutað var í janúar síðastliðnum. Ég spurði hæstv. ráðherra um það áðan hvort þeir sem þá fengu starfslaun myndu eiga kost á því að fá úthlutað fleiri mánuðum núna ef þeir sæktust eftir því. Ég hefði allt eins líka getað spurt hvort t.d. væri horft til þess hvort þetta fólk hefði fengið stuðning í einhverju öðru formi o.s.frv., en þá voru nú eiginlega svörin þau að þetta væri eitthvað sem kæmi ráðherra ekkert sérstaklega við eða þinginu, það væri meira úthlutunarnefndin sjálf og að hún starfaði eftir ákveðnum reglum og ferlum sem ákvörðuðu þetta. En nú ber hins vegar svo við að þingmenn Sjálfstæðisflokksins halda hér ræður þar sem þeir eru í rauninni að kalla eftir því að þingið hlutist til um þetta með einhverjum hætti eða sjái til þess, setji úthlutunarnefndinni eða -nefndunum einhverjar skorður um þetta nákvæmlega, tryggi að það séu ýmist kannski þeir aðilar sem urðu fyrir mestu tekjufalli eða eru í fjárhagskröggum sem fái úthlutað listamannalaunum eða að einhverjir sem fengu, hér var notað orðið bætur, yrðu útilokaðir frá listamannalaunum. Þarna er ákveðið misræmi sem mér þætti fróðlegt að heyra aðeins frá hv. þingmanni hvað henni finnst um og hvernig hún sér þetta eiginlega fyrir sér allt saman, hvert hlutverk okkar á þinginu er í þessum efnum og hlutverk ráðherra. Þetta ætti kannski að vera svolítið skýrara í greinargerð þessa frumvarps, hvernig þetta er allt saman hugsað, vera meiri leiðbeiningar um þetta í rauninni.