152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:29]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég veit ekki alveg hvort og hvernig ég get í rauninni svarað því. Eins og kom fram setti ég sjálf ekki fyrirvara við þetta og var að reyna að lýsa því í ræðu minni. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason fór ágætlega yfir sinn fyrirvara m.a. við málið og svaraði fyrir það líka í andsvörum. Það hefur auðvitað verið svolítil umræða um þessar leiðir. Það er alveg ljóst að ríkisstjórnin greip til mjög viðamikilla aðgerða í kjölfar kórónuveirufaraldursins til að halda uppi atvinnustigi og til að styðja heimilin í landinu. Hlutabótaleiðin var auðvitað ein leið í þeim efnum. Hún átti líka að nýtast einyrkjum og þar af leiðandi einnig sjálfstætt starfandi listamönnum. Það kom gagnrýni á framkvæmdina og margir töldu þetta of flókið og ég stóð í þeirri meiningu að við hefðum farið þá leið að reyna að einfalda það. Það var alla vega eitt af þeim verkefnum sem við vorum með í hv. efnahags- og viðskiptanefnd á síðasta kjörtímabili. En engu að síður ber svo við að við fáum skýrslu frá Bandalagi íslenskra listamanna þar sem þau lýsa því hvaða áhrif kórónuveirufaraldurinn hefur haft á þeirra starfsstétt og halda því fram að aðgerðirnar sem gripið hafi verið til hafi ekki verið nægjanlegar eða ekki þjónað þeim hópi nægjanlega vel. Ég hygg að það sé til að mynda ein af ástæðunum fyrir því að við séum með þetta mál sem hér er undir. Annars segi ég bara það sem ég sagði áðan, ég held að við verðum að athuga það svolítið hvort við erum ekki örugglega að horfa heildstætt á sviðið allt. Ég sé ekki í fljótu bragði það sem hv. þingmaður nefnir hér, það þurfi einhvern aukinn skýrleika í greinargerð. En það er vissulega eitthvað sem við getum tekið til athugunar í allsherjar- og menntamálanefnd í nefndaráliti ef þingmönnum finnst þörf á því.