152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:33]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka andsvarið. En ég segi aftur: Ég er kannski ekki rétta manneskjan til að svara nákvæmlega þessari spurningu því sá þingmaður sem hér stendur gerði ekki fyrirvara við frumvarpið. En eins og hefur komið fram eru vissulega einhverjir þingmenn sem hafa gert athugasemdir og það eru svona almennar vangaveltur um þetta. Eitt af þeim sjónarmiðum sem hefur heyrst er að hér er auðvitað verið að tala um tímabundna fjölgun, ég ítreka tímabundna fjölgun, starfslauna og styrkja og það er verið að horfa til þess áfalls sem þessi grein varð sannarlega fyrir í Covid. En á sama tíma eru auðvitað mjög miklar væntingar til þess að við séum öll svo þyrst í menningu og að vera saman og hitta hvert annað og njóta tónlistar, leiklistar og njóta menningar að það kann að vera að það verði mjög mikið að gera og vonandi verður alveg ofboðslega mikið að gera hjá listamönnum á næstu misserum. Það eru örugglega einhver slíkar pælingar líka. En ég get ekki svarað hv. þingmanni neitt frekar. Ég held að það standi ekki til endilega að gera einhverjar miklar breytingar á þessu. Eins og ég sagði áðan þá tökum við þetta bara inn í nefndina og förum yfir þær umsagnir sem okkur berast og sinnum því hlutverki sem okkur er falið. Svo verður bara að koma í ljós hverjir standa með málinu að því loknu og hvort nefndin komi sér saman um einhverjar breytingar ef þörf er talin á því.