152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:35]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Við ræðum hér um þetta frumvarp hæstv. menningarmálaráðherra um breytingu á lögum um listamannalaun er varðar tímabundna fjölgun starfslauna og styrkja í þágu listamanna. Af því tilefni langar mig að ræða aðeins umhverfi listamanna og hvernig það hefur breyst undanfarin ár, því að það er ekki bara kórónuveirufaraldur sem hefur breytt starfsumhverfi listamanna heldur líka starfsaðstæður sem þeim er boðið upp á. Árið 2011 voru starfslaun listamanna um 275.000 kr. á mánaðargrundvelli en 410.000 árið 2021 og eru núna 490.000. Hækkunin nemur auðvitað töluverðu þegar við horfum á það, 49% á tíu ára tímabili, en á sama tíma hefur launavísitalan hækkað um 96%. Ef starfslaun listamanna hefðu hækkað í samræmi við almenna launaþróun síðustu tíu ár myndu starfslaunin nema 537.000 kr. á mánuði og það munar um það, því að við megum ekki gleyma því að hér er um að ræða verktakagreiðslur. Ríkisskattstjóri gefur út viðmiðunartölur sem einyrkjum, sjálfstætt starfandi listamönnum, ber að skrá sem tekjur sínar sem lágmarksviðmið fyrir þá sem eru ekki að byrja í rekstri og talan sem ríkisskattstjóri miðar við eru 582.000 á mánuði. Þetta er næstum því 100.000 kr. hærri tala sem Skatturinn segir að sé algjört lágmark að listamaður hafi í tekjur til að lifa af og sú fjárhæð sem ríkisstjórnin treystir sér til að skaffa í tímabundinn stuðning til okkar færustu listamanna.

Auðvitað fagna ég því að það eigi að fjölga mánuðum, en við verðum að skoða þetta í öllu þessu samhengi. Það hefur orðið verulegur samdráttur í hópi listamanna á undanförnum árum, verulegur, og þetta sýnir okkur greining BHM sem kom út seint á síðasta ári. Þar er dregin sú ályktun að lág starfslaun geta skýrt hluta af samdrætti í ákveðnum greinum, t.d. í bókaútgáfu en sem dæmi voru gefnar út rúmlega þrjár íslenskar bækur á 1.000 íbúa árið 2019 miðað við rúmlega fimm bækur á 1.000 íbúa 2011. Þetta er fyrir Covid. Við þurfum að taka ákvörðun um það hvort við ætlum að láta listamenn lifa af hungurlús eða hvort við ætlum í alvöru að styðja við bakið á listafólki sem ber hróður okkar út um allan heim, sem eykur verulega á fjölda ferðamanna sem hingað koma sem koma annars vegar til að berja augum íslenska náttúru og hins vegar vegna útbreiðslu íslenskrar listar á erlendri grundu. Ég þreytist ekki á að minnast á það þar sem ég var á ferðalagi með hljómsveit sem ég var umboðsmaður fyrir að eitt sumarið voru 25 íbúar Mexíkóborgar að læra íslensku — 25. Það var nær alfarið vegna þess að þeir höfðu kynnst landinu í gegnum listamenn sem fóru ýmist með tónlist sína, mjög mikið Björk og Sigurrós, en líka íslenskar kvikmyndir. Þetta er ómetanlegur fjársjóður sem við höfum hérna. Við megum ekki tala eins og við séum að veita listamönnunum okkar einhverja ölmusu. Við megum ekki hafa það í því formi. Þegar við tökum ákvörðun um að starfslaun listamanna séu 490.000 þá verðum við að muna eftir því að verktakagreiðsla jafngildir 70–75% af launum, jafnvel undir 70%, ég held að það séu 67% sem er miðað við, af því að það þarf að hugsa um launatengd gjöld. Listamenn verða að greiða í lífeyrissjóð. Listamenn verða að borga allar sína skatta og skyldur og listamannalaunin hafa dregist mjög saman í samanburði við aðra.

Þetta skiptir máli. Það hefur orðið mikill samdráttur í heildarlaunagreiðslum í atvinnugreinum menningar síðustu ár og starfslaun listamanna eru með lægstu launum á markaði. Það var ótrúlega áhugavert í Covid-faraldrinum þegar við í hv. velferðarnefnd fengum inn listamenn. Ég hafði frumkvæði að því enda með rætur í þessum geira, ég þekki þetta, ég þekki það að vera í þessum bransa, að kerfið virkar svo illa fyrir þennan hóp. Þegar þau komu með pappírana sína inn í Vinnumálastofnun til þess að segja frá því að þau hefðu misst vinnuna kom alltaf þessi spurning: Já, en hvar vinnur þú? Þá þurftu listamennirnir að segja: Já, ég er hérna að kenna tvo tíma í viku hér og svo er ég spila á hljóðfæri mitt þarna. Svo er ég líka að túra með þessari hljómsveit o.s.frv. Og tölvan hjá Vinnumálastofnun skildi þetta bara ekki. Hún gat ekki fundið út úr þessu. Það er þess vegna sem þessi hópur varð undir þegar kom að því að grípa þá sem misstu bjargir sínar, misstu framfærslu sína á þessum tímum, af því að þetta er óhefðbundið starfshlutfall hjá hinum og þessum. En það er ekki bara kórónuveirufaraldurinn sem hefur valdið þessu. Það er líka pólitísk ákvörðun. Það er eitthvað í umhverfi okkar sem gerir það að verkum að það hefur orðið 25% samdráttur í fjölda starfandi einstaklinga í atvinnugreinum menningar. Það er fjórðungur sem hefur ákveðið að fara í önnur störf af því að þetta er svo ótryggt og svo lítill skilningur. Hann er ofboðslega lítill, fann ég t.d. inni í velferðarnefnd og það finnur maður oft á umræðunni hérna líka. Það er ofboðslega lítill skilningur á þessum högum. Á árinu 2008 unnu tæplega 7.000 manns í atvinnugreinum menningar. Núna vinna rúmlega 5.000 í þessum atvinnugreinum. Það munar mjög miklu. Fjöldi starfandi listamanna var, rétt áður en núverandi ríkisstjórn tók við, tæplega 6.800 manns, sem störfuðu við listir og menningu. Árið 2020, fyrir Covid, voru þetta rúmlega 5.000. Þetta hefur gerst á tímum þessarar ríkisstjórnar. Ég held að það væri gott að hugsa aðeins út í það. Getur verið að þótt starfslaunin hafi hækkað sé allt umhverfið þeim ekki hagstætt? Þessar ofboðslega ótryggu tekjur sem þú þarft að sækja um. Þú ferð í lottóið á hverju ári. Færð 490.000 í verktakagreiðslur, sem er auðvitað miklu minna í ráðstöfunartekjur og mánuðirnir eru auðvitað mjög fáir. Í launasjóði rithöfunda voru 555 mánuðir til úthlutunar en það var sótt um 2.700 mánuði á síðasta ári. Launasjóður sviðslistafólks var 190 mánuðir til úthlutunar og það voru 2.100 mánuðir í umsóknum.

Þetta sýnir svolítið á hvaða stað þetta er. Það þarf að marka stefnu um aukinn stuðning við listir og menningu og það þarf að gera það þannig að það sé einhver fyrirsjáanleiki. Ég heyri frá þeim sem reka húsin núna, og ég heyri líka frá þeim sem eru að bíða eftir þessum stuðningi sem hér er verið að lofa, að tímasetningin skiptir líka mjög miklu máli. Það var boðað að farið yrði í þessar aðgerðir um áramót, þá fengum við fréttir af því. En núna, þegar er að líða að lokum marsmánaðar, kemur þetta frumvarp og þeir sem sækja um, eins og t.d. sviðslistafólk, á það á hættu að geta ekki nýtt mögulegan stuðning vegna þess að það er búið að bóka í öll húsin. Af hverju? Af því að húsunum hefur fækkað verulega í tíð þessarar ríkisstjórnar, húsunum þar sem sviðslistahóparnir geta átt inni, þar sem sviðslistahóparnir geta átt möguleika á að koma með sínar sýningar. Mörg þeirra hafa orðið ferðaþjónustunni að bráð, ef svo má segja, það eru komin hótel úti um allt. En það er líka af því að stjórnvöld veita ekki neinn stuðning eins og þekkist víða á Norðurlöndunum t.d. og víða um Evrópu, veita engan stuðning til húsanna sjálfra sem þurfa að hýsa þessar listgreinar. Það var leikhús hérna úti á Nesi. Það var leikhús í Héðinshúsinu, Loftkastalinn, sem hýsti alveg ótrúlega skemmtilega sýningar. Það var leikhús á NASA. Tjarnarbíó er auðvitað frábært hús. Þetta voru alls konar lítil leikhús. En rekstrargrundvöllurinn hefur einhvern veginn verið þeim gríðarlega erfiður.

Mig langar síðustu tvær mínúturnar aðeins að leyfa mér að hafa orð á þessari dæmalausu hugmynd hv. þm. Vilhjálms Árnasonar um að leggja niður heiðurslaun listamanna. Heiðurslaun listamanna geta einungis þeir fengið sem hafa varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi. Taka skal tillit til skiptingar í hópi heiðurslauna listamanna eftir listgreinum og kyni og skulu þau veitt listamanni að fullu til 72 ára aldurs og skulu þau vera sömu og starfslaun listamanna eru á hverjum tíma, en eftir sjötugt verði þau 80% af starfslaunum.

Nú er það svo, frú forseti, að ef við ætlum að gera einstaklingum það, sem við höfum tekið ákvörðun um að sæti heiðurslaunum listamanna, að fara í þessa púlíu, mörg hundruð listamanna púlíu á hverju ári þar sem listamenn þurfa að færa fram nákvæma lýsingu á því sem þeir ætla að gera fyrir stuðninginn, þá munum við kasta þessum verðmætum okkar algerlega á glæ og möguleikum okkar á að þakka þessum listamönnum fyrir ótrúlega óeigingjarnt starf alla starfsævina. Þá munum við bara fleygja því. Og fyrir hvað? Ég skal hundur heita ef ég mun ekki standa hér dögum og kvöldum saman og rökræða þetta við þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem virðast ótrúlega lítinn skilning hafa á listum og menningu.