listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hennar ræðu. Hjarta mitt slær í svipuðum takti og hún talaði um og með mikilli virðingu fyrir þessum hópi sem hefur litað líf okkar bara frá því að manneskjan varð til. Við lesum í bókum um fátæka listamenn sem hafa ekki haft til hnífs og skeiðar en voru alltaf kallaðir til þegar eitthvað skemmtilegt átti að gerast og þannig er það líka hjá okkur. Ef við ætlum að hafa gaman þá er það listin sem gerir hlutina skemmtilega þannig að heimurinn án menningar væri lítilfjörlegur heimur að mínu mati. Hv. þingmaður nefnir fjölda samninga og fjölda þeirra sem sækja um en fá ekki. Hvar standa þeir? Ég nefndi það hérna í andsvari í dag að það er hópur fólks sem vinnur á bak við tjöldin og sinnir listviðburðum án þess að vera endilega í framlínunni. Hvar stendur sá hópur? Sjáum við að það sé verið að standa með þessum hópi? Þeir sem eru í harki, þeir sem eru að spila á pöbbunum, hafa verið að spila á árshátíðum, fólk sem er ekki endilega metið sem frábærir listamenn við að selja diska eða gefa út eitthvað en þetta er fólk sem er samt að veita okkur lífsfyllingu sem við þurfum svo sannarlega á að halda. Sjáum við að það sé verið að gæta hagsmuna þessa hóps?