listamannalaun.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Nei, auðvitað ekki. Þeir tónlistarmenn sem mér fannst hv. þingmaður vera helst að beina sjónum sínum að, þeir sem hafa verið í dægurtónlistinni, hafa sjaldnast náð inn á starfslaun listamanna en þó eru til undantekningar. Við erum að sjá einhver bönd komast inn. En bara til að upplýsa þá sem kunna að vera að fylgjast með þá er það ekki þannig að þú bara setjir nafnið þitt í pott og það sé dregið út. Þegar sótt er um starfslaun skilar þú bara doðranti um það hvað þú hefur í hyggju að gera. Allir þeir sem ég þekki og eru í þessu vonast auðvitað til að fá úthlutað mögulega jafn mörgum mánuðum og þeir vita að verkið mun taka en það er sjaldnast þannig. Þá reyna þeir að drýgja tekjurnar, láta fjárhæðina ná yfir fleiri mánuði til að geta lokið verkefninu. En þeir sem úthluta starfslaunum þurfa líka að sjá að það sé einhver afrakstur þannig að ég veit ekki hvort þau sem eru í þessum giggum séu að sækja um, a.m.k. sér maður ekki mikið af þeim í úthlutununum.