152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:54]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Ég hef áhyggjur af þessum hópi sem telst ekki til — ég vil kannski ekki nefna orðið elíta en samt kemur það upp í huga minn, af því að það er bara fullt af fólki, listamenn og aðrir, við getum kallað það götulistamenn, fólkið sem er með okkur og sinnir okkur þegar við erum að njóta lista en er ekkert endilega hátt á tindinum, í sinfóníugeiranum eða einhvers staðar þar. Við vitum líka um leikhúsin, ekki Þjóðleikhúsið eða Borgarleikhúsið heldur sjálfstæð lítil leikhús, fólk sem hefur ekki komist á samninga hjá stóru leikhúsunum og hefur verið sem einyrkjar að rembast við að setja upp sýningar þegar þannig hefur viðrað en í Covid ekki neitt. En manni hefur fundist eins og þessar aðgerðir ættu að vera einhvers konar Covid-aðgerðir. Veitingageirinn fékk styrki og það eru búnir að vera viðspyrnustyrkir alls konar. Ég upplifi það þannig að þarna sé stór hópur listamanna og fólks sem tengist list á einhvern hátt og vinnur við það að koma list á framfæri sem er bara gjörsamlega gleymdur. Ég sagði það áðan, ég á vini sem hafa bara lifað við fátæktarmörk og ekki átt fyrir mat af því að þeir voru einyrkjar, voru kannski hljóðmenn einhvers staðar og unnu hjá hljóðfæraleigu sem einyrkjar og svo bara var ekkert gigg og þá eru þeir bara heima. Þeir fá ekki neitt. Ég hef áhyggjur af þessum gleymda hópi sem er okkur svo mikilvægur samt sem áður.