152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[17:59]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Loksins, loksins, sagði hæstv. ráðherra í framsöguræðu sinni. Ég hugsaði nú líka það sama en ég held að höfum kannski átt við ólík „loksins“ þegar við hugsuðum um þetta. Hæstv. ráðherra heyrðist mér vera að vísa til þess að hafa þurft að bíða í heila viku eftir því að koma málinu á dagskrá til umræðu eftir að það komst fyrst á dagskrá hér á þingi. Ég hugsaði: Loksins er komið frumvarp um starfslaun fólks í listgreinum árið 2022, þegar fyrsti ársfjórðungur þess árs er við það að líða, hefði jafnvel mátt vera aðeins fyrr þannig að fólk í þessum bransa hefði smá fyrirsjáanleika um eigin afkomu.

Þessi seinagangur ríkisstjórnarinnar, sem hefur verið einkennandi í gegnum allt tímabilið, í öllum viðspyrnuaðgerðum, er í þessu tilviki mögulega að fara að spilla sumum af þeim verkefnum sem sótt er um, því eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir, hokin af reynslu sem umboðsmaður hljómsveita í fyrri tíð, benti svo réttilega á þá er bara ekkert auðvelt endilega að bóka út árið, þegar komið er langt inn á það, aðstöðu til að sýna list, hvort sem það er tónlist eða sviðslistir.

Segjum að ég tilheyri fimm manna sviðslistahópi og mig langi að setja á stokkana verk einhvern tímann næsta haust. Þá hefði ég kannski þurft að fá vilyrði um launagreiðslur sem byrjuðu strax í janúar til þess að ég gæti gert og græjað og æft og samið og séð fyrir öllu sem þarf að gera til að setja almennilegt „sjó“ í gang. Núna þarf allt þetta fólk að hlaupa hraðar til þess að ná launum sem eru ekki einu sinni það há, hafa ekki verið verðlagsuppbætt og eru verktakagreiðslur upp á 490.000 á mánuði á mann.

En jú, loksins er þetta komið og mig langar sérstaklega að lýsa ánægju með að hérna er gerð tilraun til að eyrnamerkja hluta mánaðarlauna fólki í ákveðnum aldurshópi. Ungt sviðslistafólk og ungir tónlistarflytjendur fá hér eyrnamerkt 50 mánaðarlaun í hvorum flokki. Mér finnst það dálítið smart til að tryggja það að nýliðar í bransanum, sem ég gæti líka ímyndað mér að ættu kannski erfiðara með að fóta sig en þeir sem eldri eru, eru kannski líka ekki í jafn tryggu húsnæði, þetta er fólk sem hefur allt aðrar og jafnvel meiri fjárhagsáhyggjur en eldra fólk í bransanum — bara gott að við tökum sérstaklega utan um þann hóp og eitthvað sem mætti skoða síðan við þá heildarendurskoðun sem verður á þessu kerfi á næstu árum.

Þar finnst mér að við mættum líka fara að líta til aukins sveigjanleika. Nú er það svo að lögin eins og þau eru gera ráð fyrir 50 mánuðum til hönnuða, 435 til myndlistarmanna, 555 til rithöfunda, sem mér finnst reyndar svo falleg tala að ég vil helst ekki sleppa henni fyrir nokkra muni, 190 mánuðir fara til sviðslistafólks, 180 til tónlistarflytjenda og 190 til tónskálda. Þetta eru hlutföll og tölur sem eru fundnar út í einhverju samtali við Bandalag listamanna, við fólkið í grasrótinni, fólkið sem veit hvernig bransinn lítur út og hvernig kannski væri eðlilegast að skipta kökunni. Að því leytinu til er sniðugt að byrja á þeim punkti. Út úr þessu fær kerfið að 1.600 mánuði þurfi inn í listamannalaunin, en væri ekki sniðugt að segja að þetta væri svona einhver lágmarksfjöldi mánaða í hvern geira og svo væru kannski 800 eða 1.600 mánuðir til viðbótar sem væru ekki eyrnamerktir heldur myndu fljóta þarna dálítið á milli? Þannig að ef eitt árið væri alveg dúndurvertíð hjá sviðslistafólki, það væri hugmyndaríkt, það væri með góðar umsóknir sem kæmu í massavís inn til matsnefndarinnar, þá myndi sá hópur stækka, þá myndi sá geiri vaxa, ekki á forsendum forskriftar í lagatexta frá árinu 2009 heldur á forsendum hugmyndanna sem spretta í samfélaginu í dag. Þetta er bara eitthvað sem mig langaði að leggja inn hjá þeim sem fara að fjalla um þessi mál í allsherjar- og menntamálanefnd á næstu vikum.

Síðan, sem ég ræddi við hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, sem er svo heppin að sitja bæði í allsherjar- og menntamálanefnd, sem fær þetta mál til umfjöllunar, og fjárlaganefnd, þarf að passa upp á að fjármagnið vanti ekki í þessa aðgerð. Það kemur fram í greinargerð með frumvarpi menningar- og viðskiptaráðherra að gert sé ráð fyrir þeim 100 milljónum sem er bætt í kerfið á fjáraukalögum 2022. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir hélt reyndar að þetta hefði komið inn í fjárlögum þessa árs en greinilega sér menningarráðuneytið þetta öðrum augum. En vandinn er að þessar 100 milljónir sjást ekki í fjáraukalögunum sem við ræddum fyrr í dag. Við þurfum bara að vera með belti og axlabönd í því að við lendum ekki allt í einu í einhverri fjárþörf þegar fólk kemur og innheimtir þau viðbótarlistamannalaun sem til ráðstöfunar eiga að vera.

Ég ætlaði nú alls ekki að lengja þessa umræðu sem er búin að fara vel yfir sviðið og kannski fátt sem þarf að bæta við, en svo langaði mig bara örstutt, eins og hv. þm. Helga Vala Helgadóttir, að lýsa verulegum efasemdum um að afleggja heiðurslaunakerfið með öllu. Það má breyta því, svo sannarlega, eins og öllum kerfum sem við höfum smíðað, en ég myndi vilja breyta því á þann hátt að við snarstækkum það. Þetta er hugmynd sem kom fram í umsögn frá Bandalagi íslenskra listamanna fyrir að mig minnir sjö, átta, jafnvel tíu árum þar sem þau lögðu til að í stað þess að við værum með þennan litla hóp á lágum launum, lágum heiðurslaunum, þá værum við með stærri hóp sem spannaði hið menningarlega svið dálítið vel, sýndi ákveðna breidd. Þetta væri fólk sem væri búið að skila nokkuð góðu ævistarfi, væri þá komið á þann aldur að það væri kannski að leggja minni áherslu á listsköpunina, væri að setjast í helgan stein, en fengi þarna bæði nokkra framfærslu en fengi líka eitthvert hlutverk. Bandalagið lagði nefnilega til að heiðurslaunakerfið myndi umbyltast í einhverja, ég held að þau hafi kallað það akademíu, akademíu lista og menningar. Þarna væri, við gætum kallað það öldungaráð, ég held að við værum ekki að móðga neinn ef við segðum það, sem gæti verið til ráðgjafar fyrir stjórnvöld um ýmislegt, gæti haldið úti opinberri umræðu um menningarmál, gæti bara verið dálítið skemmtilegt, svona leikskóli fyrir gamla listamenn. Þetta er átt sem ég myndi miklu frekar vilja fara í heldur en sú átt sem hv. þm. Vilhjálmur Árnason nefndi, að láta bara allt loft puðrast úr þessari blöðru. En það er seinni tíma umræðuefni og eitthvað sem ég ætla ekki að orðlengja, mig langaði bara rétt að nefna það hér.