listamannalaun.
Virðulegur forseti. Mér þótti athyglisvert að hlusta á hv. þingmann nefna aukinn sveigjanleika sem mér finnst spennandi að horfa til. Hann nefndi þarna tvöföldun, að það væru til einhverjir aðrir 1.600 sem gætu verið verkefnatengdir með einhverjum hætti. Mér hugnast þetta. Ég held að þarna værum við að búa til möguleika fyrir þá sem falla á milli skips og bryggju. Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir nefndi að hátt á þriðja þúsund manns væru að sækja um þessa styrki en það væru ekki nema sirka 400 manns sem fengju þá. Það er bara lítið brot af þeim sem þurfa á þessu að halda sem njóta. Ég væri spenntur fyrir því að svona hugmynd væri útfærð með einhverjum hætti, ef hv. þingmaður hefur eitthvað velt þessu meira fyrir sér. Það er fullt af hugmyndaríku fólki þarna úti sem hefur ekki endilega aðgang að fjármagni en myndi svo sannarlega hafa áhrif á okkur og geta glatt okkur og sitt samfélag og sitt umhverfi með því að hafa aðgang að fjármagni til að setja á laggirnar verkefni, sem er í raun og veru rétt að styrkja með einhverjum hætti þó að fólk sé ekki endilega sett á laun heldur að það geti staðið fyrir einhverjum viðburðum og uppákomum sem gætu þá þjónað samfélaginu. Mér finnst þetta áhugavert og myndi gjarnan viljað heyra hv. þingmann tjá sig aðeins meira um þetta.