listamannalaun.
Frú forseti. Nei, ég er nú ekki mikið búinn að spá í þetta. Ég er ekki með fullmótaða hugmynd hér. Þetta er eitthvað sem kviknaði í kaffispjalli í þingflokksherbergi Pírata þar sem við vorum að ræða samspil hugmynda um starfslaun listamanna og hugmynda sem Píratar hafa lengi haldið á lofti varðandi borgaralaun, skilyrðislausa grunnframfærslu þar sem sveigjanleikinn er alger. Þá fær fólk bara grunnframfærslu í hendurnar og getur gert það með líf sitt sem því sýnist. Það getur verið mjög þægilegt öryggisnet fyrir t.d. fólk sem vill leiðast út í hinar skapandi greinar að þurfa ekki að hafa áhyggjur af grunnframfærslunni. Það sem við fórum að hugsa var einmitt þetta: Það getur verið jákvætt í svona framfærslukerfi eins og starfslaun listamanna er að vera með einhverja skilyrðingu eða að flokka þetta eftir listgreinum vegna þess að við viljum standa vörð um ákveðna fjölbreytni, við viljum ekki að allt í einu þorni bara allt upp hjá tónlistarflytjendum vegna þess að það koma svo brjálæðislega góðir rithöfundar eitt árið með umsóknir. Með því að viðhalda einhverjum þröskuldi verði fjölbreytni tryggð og með því síðan að toppa það upp með frjálsum mánuðum sem geta flotið þarna á milli þá geta töfrarnir farið að birtast. Þar kemur sveigjanleikinn inn í kerfið þannig að það geti lagað sig að hugmyndunum eins og þær eru í samfélaginu á þeim tímapunkti. Ef það koma rosalega margir rithöfundar það árið þá fái allar greinar grunninn en rithöfundasúlan verði bara dálítið stór. Síðan það sama með hinar greinarnar. En ég er sammála hv. þingmanni, mér finnst þetta spennandi hugmynd og hún lyfti mér dálítið þegar við ræddum hana niðri í herbergi fyrr í dag.