152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

listamannalaun.

408. mál
[18:31]
Horfa

menningar- og viðskiptaráðherra (Lilja Alfreðsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Eins og ég kom inn á þá tel ég að þessi málflutningur eigi ekki við. Ef við lítum á það sem hefur verið að gerast, og þar erum við með tölur fyrir framan okkur, þ.e. að sumir hafa upplifað 87% tekjufall, þá ber okkur siðferðisleg skylda til að ná utan um þá hópa sem lentu mjög illa í Covid. Þetta er liður í því. Ég vil upplýsa hv. þingmann um að við fórum í mikið og umtalsvert samráð við Bandalag íslenskra listamanna, við ÚTÓN, við alla sem koma að þessu máli. Þetta eru sértækar aðgerðir til handa þeim listamönnum sem fóru sérstaklega illa út úr Covid. Við sjáum sjálf að rithöfundar eru í annarri stöðu en við ákváðum að beina sjónum okkar að þeim hópum sem gátu til að mynda ekki haldið sína viðburði. Við sáum að með ómíkron datt jólavertíðin út líka. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þetta sé til heilla og ég hvet þingheim og alla þingmenn til að taka undir og styðja þetta frumvarp.