listamannalaun.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þetta svar og vil spyrja hæstv. ráðherra hvort hún geri ráð fyrir víðtækum stuðningi við þetta mál frá stjórnarmeirihlutanum. Þrátt fyrir það hvernig einstakir þingmenn hafa talað hér í dag hafa orðið einhverjar tafir á málinu vegna óeiningar í stjórnarliðinu. Það væri kannski fróðlegt að heyra það líka fyrst það kom ekki fram fyrr en 1. mars. Já, það væri kannski fróðlegt að heyra það sérstaklega hvort þetta mál hafi tafist vegna óeiningar innan ríkisstjórnar eða meðal stjórnarliða.