152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:35]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til nýrra heildarlaga um fjarskipti sem lagt hefur verið fyrir á tveimur síðustu þingum en ekki náð fram að ganga. Frumvarpið er hér lagt fram í lítillega breyttri mynd.

Gildandi fjarskiptalög þarfnast endurskoðunar enda hafa framfarir í fjarskiptatækni og fjarskiptaþjónustu verið miklar. Meginmarkmið frumvarpsins er að tryggja sem best aðgengileg hagkvæm, áreiðanleg og örugg fjarskipti hér á landi. Enn fremur að auka vernd og valmöguleika neytenda og stuðla að virkri samkeppni, hagkvæmum fjárfestingum og nýsköpun á sviði fjarskipta. Skynsamleg uppbygging fjarskiptainnviða, ekki síst ljósleiðaravæðing byggðakjarna á landsbyggðinni og vegna fyrirsjáanlegrar 5G uppbyggingar, er þjóðhagslega mikilvæg fyrir Ísland.

Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði hér á landi efnisákvæði nýlegrar tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2018/1972 um setningu evrópskra reglna um fjarskipti sem gjarnan er vísað til í daglegu tali sem Kóðans. Um er að ræða nýja grunngerð sem leysir af hólmi fjórar eldri Evróputilskipanir sem gildandi íslensk fjarskiptalög byggja einkum á og tekin var upp í EES-samninginn haustið 2021. Að einhverju leyti gefa ákvæði tilskipunarinnar svigrúm til útfærslu við innleiðingu í landsrétt en það er þó mjög takmarkað. Taka ber fram að sum ákvæði gildandi fjarskiptalaga og þessa frumvarps eiga rætur að rekja til ýmissa annarra gerða Evrópusambandsins á sviði fjarskipta sem gilda munu samhliða Kóðanum. Þó svo að fyrirsjáanlega verði um talsverðar breytingar á landsrétti ræða, verði frumvarp þetta að lögum, er ljóst að ekki verður um eðlisbreytingu að ræða.

Á meðal nýmæla og helstu breytinga sem frumvarpið gerir ráð fyrir frá gildandi fjarskiptalögum eru: Efnisákvæði er varða álagningu kvaða á fjarskiptafyrirtæki eru meiri að umfangi en í gildandi fjarskiptalögum en þó ætti að draga úr fjölda álagðra kvaða og flækjustigi við málsmeðferð. Aðferðafræði við markaðsgreiningar er í grundvallaratriðum óbreytt en það er nýmæli að kveða á um tímafresti til að ljúka þeim. Hvatar eru til samstarfs markaðsaðila og sameiginlegrar fjárfestingar við uppbyggingu innviða. Stuðlað er að hagkvæmari uppbyggingu 5G kerfa, tryggja á aðgengi að 5G farnetstíðnum og aðstöðu fyrir senda, en frumvarpið gerir ráð fyrir fyrirsjáanleika til 15–20 ára að því er gildistíma tíðniréttinda varðar. Þá er lagt til að opnað verði á framsal og leigu tíðniheimilda milli markaðsaðila. Einfaldari stjórnsýsla er með samræmdu heildsöluverði fyrir lúkningu símtala og SMS á EES-svæðinu. Aukin áhersla er einnig á aðgengi neytenda að upplýsingum og samanburði á verði og gæðum fjarskiptaþjónustu svo og stöðlun viðskiptaskilmála. Þá er lagt til að hámarksbinditími samninga um fjarskiptaþjónustu við neytendur verið lengdur úr sex í 12 mánuði og réttarvernd neytenda verði aukin með sérákvæði um pakkatilboð. Í alþjónustu felist að neytendum skuli á viðráðanlegu verði tryggður aðgangur að nothæfri netaðgangsþjónustu og símaþjónustu með tilgreindum gæðum. Aukin áhersla er lögð á öryggi fjarskiptaneta með kröfum þess efnis til fjarskiptafyrirtækja og eftirliti Fjarskiptastofu út frá áhættumiðaðri nálgun þar sem sérstaklega er hugað að almannahagsmunum og þjóðaröryggi með vísan til nýlegra breytinga laga um áfallaþol fjarskiptaþjónustu og fjarskiptaneta. Fjarskiptastofa fær síðan heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á fjarskiptalögum en samkvæmt gildandi lögum getur stofnunin einungis lagt á dagsektir.

Þar sem við hefur átt hafa upplýsingar verið uppfærðar í endurfluttu frumvarpi til samræmis við áorðna þróun frá því að mælt var fyrir því á síðasta þingi, haustið 2020. Vísað er til nýlega samþykktra laga um Fjarskiptastofu, nr. 75/2021, áður Póst- og fjarskiptastofnun, upptöku Kóðans í EES-samninginn, sem gerðist á milli þess að frumvarpið var lagt fram hér, og laga nr. 17/2022, um breytingu á lögum um fjarskipti, lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, áfallaþol fjarskiptaþjónustu og fjarskiptaneta, sem samþykkt voru á Alþingi 10. febrúar síðastliðinn.

Virðulegi forseti. Þá ætla ég að fara yfir helstu breytingar á efnisákvæði frumvarpsins frá fyrri framlagningu svo að það sé enn skýrara. Breytingar eru lagðar til á 34. gr. um aðgang að landi og mannvirkjum er stuðla eigi að skjótari úrlausn ágreinings um fjarskiptalagnir. Í 54. gr. verði gert ráð fyrir að líta beri til viðskiptasamninga við einstök ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins er kveða á um hámarksverð fyrir símtöl í reikiþjónustu og millilandafjarskipti ef við á, svo sem til Bretlands. Í 62. gr. er gert ráð fyrir að réttur til alþjónustu nái einnig til örfélaga í skilningi laga um ársreikninga á stöðum þar sem þau eru með heilsársstarfsemi. Ákvæði 78. gr. frumvarpsins, um skipulag net- og upplýsingaöryggis og umgjörð áhættustýringar, tekur breytingum til samræmis við ákvæði áðurnefndra breytingarlaga nr. 17/2022. Lagt er til að lögfest verði í 86. gr. heimild til handa ráðherra að veita undanþágu frá banni við botnveiðum yfir fjarskiptasæstrengjum. Smávægilegar breytingar eru síðan lagðar til á 87. gr. og nýjum 2. málslið verði bætt við 3. mgr. þeirrar greinar. Þá er lögð til breyting á 92. gr. sem varðar form gagna sem skylt er að afhenda lögreglu. Lagt er til að nýmæli um áreiðanleika neyðar- og öryggisfjarskipta verði fundinn staður í nýrri 95. gr. frumvarpsins. Skerpt hefur verið á orðalagi og hugtakanotkun að nokkru leyti og orðskýringarákvæði 5. gr. endurskoðað.

Lagt er til að gildistaka nýrra laga verði um mitt ár 2022 eða 1. júlí næstkomandi. Undirbúningsvinna vegna endurmats á gildandi reglugerðum og reglum Fjarskiptastofu og setningar nýrra er hafin, m.a. vegna viðauka og undirgerða Kóðans.

Verði frumvarpið að lögum er áætlað að kostnaður ríkisins geti aukist um allt að 185 millj. kr. á ári og felist að öllu leyti í auknum kostnaði við starfsemi Fjarskiptastofu. Gera má ráð fyrir auknum tekjum vegna úthlutana tíðniheimilda að fjárhæð 20 millj. kr. á ári, samanber 22. gr. laga um Fjarskiptastofu. Má því segja að hrein útgjaldaaukning fyrir ríkissjóð verði um 165 millj. kr. á ári. Draga kann úr þessari fjárþörf síðan á seinni hluta áratugarins þegar kemur að úthlutun úr háum tíðnum fyrir 5G en á móti kemur að ný verkefni tengd notkun 5G og háum tíðnum gætu bæst við.

Gert er ráð fyrir því að gjaldtaka samkvæmt bráðabirgðaákvæði geti mögulega skilað 750 millj. kr. í einskiptistekjur fyrir ríkið ef öllum tíðniheimildum verður endurúthlutað við lok gildistíma þeirra. Áætluð kostnaðaraukning byggir á greiningu Fjarskiptastofu og þeim auknu verkefnum sem stofnuninni er falið samkvæmt ákvæðum frumvarpsins og viðmiðum um hvernig framkvæmd þeirra yrði háttað. Þau ákvæði frumvarpsins sem einkum hafa áhrif á kostnað stofnunarinnar varða auknar kröfur um öryggi fjarskipta, aukið flækjustig á fjarskiptamarkaði vegna 5G uppbyggingar og þá geta örar tæknibreytingar með tilheyrandi breytingum á högun og samsetningu fjarskiptaneta sem og breytingar á framboði fjarskiptaþjónustu haft veruleg áhrif á kostnað við eftirlit og stjórnsýslu.

Virðulegi forseti. Þá vil ég nefna helstu verkefni Fjarskiptastofu sem leiða má af þessu frumvarpi og fela í sér ný útgjöld eða aukinn kostnað sem að framan var greindur. Þau eru aukið eftirlit með öryggi fjarskiptaneta og fjarskiptaþjónustu sem kveðið er á um í frumvarpinu sem og þróun eftirlits og önnur viðfangsefni sem tengjast allri 5G uppbyggingunni. Það er aukin áhersla í frumvarpinu á markaðsgreiningar sem leitt geta til breytinga á kvöðum og þá er þátttaka Fjarskiptastofu á vettvangi evrópsk hóps um eftirlitsaðila á sviði fjarskipta. Aukin áhersla er einnig á frekari þróun á gagnagrunni almennra fjarskiptaneta og kveðið á um kaup og innleiðingu á nýjum búnaði, nauðsynlega endurmenntun starfsfólks og þýðingar alþjóðlegra viðmiða og staðla.

Verði frumvarpið að lögum mun það hafa áhrif á starfssemi fjarskiptafyrirtækja, sér í lagi þeirra sem reka fjarskiptanet, og gera má ráð fyrir að kostnaður kunni að aukast hjá einhverjum þeirra vegna ríkari krafna sem tengjast öryggi fjarskiptaneta. Frumvarpið felur í sér auknar kröfur um upplýsingagjöf en ætla má að kostnaður fjarskiptafyrirtækja vegna þess verði alls ekki verulegur. Á móti má síðan gera ráð fyrir að aukin áhersla á samnýtingu fjarskiptainnviða, þ.e. fjarskiptavirkja og einstaka netþátta, leiði til verulega minni kostnaðar fyrir fjarskiptafyrirtækin en ellegar hefði orðið. Með þeirri nútímavæðingu regluverksins sem í frumvarpinu felst má ætla að fjarskiptafyrirtækjum skapist ýmis tækifæri til frekari tekjuöflunar og hagræðingar.

Þá hafa ákvæði Kóðans og frumvarpsins um samevrópskt neyðarnúmer og opinber viðvörunarkerfi snertifleti við starfsemi Neyðarlínunnar, 112.

Frumvarpið er brýnt, ekki síst vegna fyrirhugaðrar úthlutunar tíðniréttinda, en gildistími fjölmargra tíðniheimilda mun renna út á þessu ári og því næsta. Eftirspurn eru því eftir því meðal markaðsaðila og verði það samþykkt mun það stuðla að aukinni samkeppnishæfni Íslands, aukinni neytendavernd, nauðsynlegri áframhaldandi uppbyggingu og framþróun á íslenskum fjarskiptamarkaði.

Samþykkt frumvarpsins er jafnframt mikilvæg til uppfyllingar á þjóðréttarlegum skuldbindingum íslenska ríkisins en ákvörðun um upptöku Kóðans í EES-samningsins var tekin með stjórnskipulegum fyrirvara 24. september síðastliðinn og öðlast gildi þegar Ísland hefur aflétt honum.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar og 2. umr.