fjarskipti .
Herra forseti. Ég vil byrja á að spyrja út í 89. gr. frumvarpsins sem er efnislega og eiginlega orðrétt samhljóða 42. gr. núverandi laga og inniheldur gagnageymdartilskipun Evrópusambandsins, sem svo hefur verið kölluð, frá árunum 2004 eða 2005, ég man ekki hvort það var. Vandamálið er að sú tilskipun var dæmd ógild af Evrópudómstólnum árið 2014. Er ekki kominn tími til að fella þá tilskipun úr gildi — hún er ekki lengur brúkleg í þeim löndum sem settu hana upphaflega — frekar en að viðhalda þessari ofboðslega víðtæku heimild? Fjölskipaður Evrópudómstóll komst að þeirri niðurstöðu að hún gengi allt of langt í að skerða friðhelgi einkalífs fólks.