152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:47]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður vísar hér í grein sem er einmitt efnislega óbreytt og fjallar um þessi gögn um fjarskipti, eða svokallaðar fjarskiptaumferðarupplýsingar, en hún er óbreytt samkvæmt gildandi lögum. Það þyrfti að skoða þessa ábendingu og það er mikilvægt að við göngum ekki harðar að friðhelgi einkalífsins en þörf krefur og að uppbyggingin sé samhljóða þeim gildandi ákvæðum sem við höfum verið að taka upp í EES-samninginn, sem gerðist eftir að frumvarpið var lagt fram síðast. Það hefur því verið uppfært í takti við þær ábendingar sem hafa komið fram í millitíðinni. Ef þetta er eins og hv. þingmaður lýsir mun ég auðvitað taka tillit til þess og býst við að nefndin muni skoða það.