fjarskipti .
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Þetta er mjög mikilvægt mál, ekki síst í ljósi breyttrar heimsmyndar eftir innrásina í Úkraínu. Eitt af því sem kveðið er á um í frumvarpinu eru auknar eftirlitsskyldur Póst- og fjarskiptastofnunar varðandi svokallaða birgðakeðju fjarskiptafyrirtækja um 5G-búnað. Mig langaði að fá að heyra frá hæstv. ráðherra hvort kostnaður vegna þessa eftirlits hefði verið metinn og hvort stofnuninni verði tryggt nægt fjármagn til að geta sinnt þessu eftirliti svo vel sé. Ég bendi á umsögn Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem kallað er eftir uppfærðu kostnaðarmati og að það þurfi að gera ráð fyrir a.m.k. einu starfsgildi sérfræðings til að geta sinnt einmitt þessu.