fjarskipti .
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Já, ég fór nokkuð ítarlega í ræðu minni yfir ýmsan aukakostnað sem fellur til vegna eftirlits Fjarskiptastofu og það hefur verið metið af henni sem og ráðuneytinu og þarf að fjármagna þegar frumvarpið er komið í gegn, það er enn þá hér til 1. umr. á þinginu. Í 78. gr., í kaflanum um öryggi fjarskipta, felst mat á kostnaði við 87. gr. og við teljum óskynsamlegt að reiða okkur um of á einn framleiðanda búnaðar í fjarskiptanetum og í því er fólgin áhætta. En með líka breyttri heimsmynd þá þurfum við að huga að öllu netöryggi stofnunarinnar og styrkja hana til þess að við séum sem best í stakk búin til að takast á við þær ógnir sem steðja að okkur í netöryggismálum og erum líka að vinna sérstaka aðgerðaáætlun eftir netöryggisstefnunni sem var birt í fyrra. Þannig að þetta er stórt verkefni og eins og hv. þingmaður kemur inn á er mikilvægt að (Forseti hringir.) Fjarskiptastofa hafi það sem hún þarf til að sinna því og ekki síður CERT-IS sem heyrir undir hana.