152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:53]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessi skýru svör. Nú er alveg ljóst að þetta er frumvarp sem ætti að leiða til fjárhagstjóns fyrir farsímafyrirtæki sem eiga nú þegar búnað frá aðilum utan EES, þannig að mér leikur hugur á að vita hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að það verði gripið til einhverra ráðstafana til að koma til móts við þá aðila á markaði sem nota búnað frá fyrirtækjum sem standa utan þess svæðis sem er þarna markað í frumvarpinu og þá sérstaklega með hliðsjón af hagsmunum neytenda.