fjarskipti .
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu þessa mikilvæga máls. Ég er með þrjár spurningar. Ég er reyndar með miklu fleiri spurningar en ég tel mig geta komið að þremur spurningum. Fyrst varðandi rannsókn sakamála. Það segir að Fjarskiptastofu beri að aðstoða lögreglu við rannsókn sakamála. Er ekki nauðsynlegt að efla þekkingu á þessum málaflokki og þá innan lögreglunnar sérstaklega sem fer að sjálfsögðu með forræði á rannsókn sakamála að þessu leyti?
Annað sem mig langar að spyrja um er varðandi stjórnvaldssektir. Það kemur fram í frumvarpinu að þær geti verið 4% af veltu fyrirtækjanna. Það var frumvarp um daginn í svokölluðu Mílumáli um breytingu á lögum um Fjarskiptastofu. Þar var ákvæðið tekið út og settar á dagsektir. Getum við ekki treyst því að þetta ákvæði um veltu verði inni í ljósi mikilvægis markaðarins? Þetta er ákvæði sem kemur úr samkeppnisrétti sem er mjög mikilvægt að sé inni. Annað um úthlutun tíðna sem ráðherra minntist á: Verður ekki farið í uppboð á þessum tíðnum (Forseti hringir.) nú í ár þegar verður endurnýjað? Og ég vek athygli á bráðabirgðaákvæðinu, hver tilgangur þess er. (Forseti hringir.) Gefur það til kynna að það verði ekki farið í uppboð?