fjarskipti .
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir góð svör. Ég bara undirstrika að mér þótti mjög sérstakt þegar veltuákvæðið eða sektarákvæðið varðandi heildarveltu var tekið út, 4%. Ég tek fram að ég er ekki í samgöngunefnd. Þetta er ákvæði sem er tekið úr samkeppnisrétti og byggir á því að ef þú ert að svindla á fjarskiptamarkaði þá ertu raunverulega að vissu leyti að fremja samkeppnisbrot þar sem hagnaðurinn getur verið gríðarlegur samkvæmt veltu. Það er gott að heyra að það verði farið í uppboð á árinu á útflutningstíðnum og að þetta sektarákvæði verði inni og einnig með rannsókn sakamála, að verið sé að efla lögreglu þegar kemur að netglæpum. Það er í takt við tímann og við þá upplýsingabyltingu sem við erum í. Við eigum eftir að sjá enn þá meiri glæpi á þessu sviði. Mig langar að spyrja ráðherrann hvort hún gæti útlistað aðeins nánar hvernig uppboðinu verður háttað, hvort það sé búið að leggja einhverjar línur hvað varðar (Forseti hringir.) uppboð á úthlutun tíðna sem mun væntanlega verða hæstbjóðandi og hvort það verður þá eitthvert forval á þeim sem bjóða.