152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:00]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Aðeins varðandi sektarákvæðið fyrst. Það var upphaflega hjá fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í samráðsgátt kveðið á um 10% mark. Eftir skoðun og ýmsar athugasemdir var því breytt í 4% sem er í takt við ýmislegt annað og erum við búin að skoða betur hvernig þetta er í löndunum í kringum okkur.

Varðandi uppboðið á tíðniheimildum hjá Fjarskiptastofu þá er það alveg lögbundið ferli, hún fer með þessa heimild samkvæmt fjarskiptalögum. Ég er ekki með það fyrir framan mig nákvæmlega hvernig það er en það fer algerlega eftir því lögbundna ferli. Þeim er mikið í mun að þetta nýja frumvarp geti klárast hratt og örugglega á þinginu þar sem það fékk mikla þinglega umræðu á síðasta þingi og er aðeins lítils háttar breytt, einmitt svo að við getum farið í þá úthlutun enda falla ýmsar heimildir niður strax á þessu ári sem og á því næsta.