152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:02]
Horfa

Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu um frumvarp til nýrra laga um fjarskipti, þskj. 666. Þegar frumvarpið var síðast lagt fram af þáverandi ráðherra barst umsögn frá Neytendasamtökunum. Mig langar aðeins til að ræða hér um neytendaverndarvinkilinn því að þar var gerð athugasemd við 72. gr. frumvarpsins varðandi það að verið sé að tvöfalda hámarksbinditíma á þeim fjarskiptasamningum sem heimilt er að gera, en að mati Neytendasamtakanna samræmist það illa markmiði laganna sem lýtur að því að auka vernd og valmöguleika neytenda og stuðla að virkri samkeppni. Skammur hámarksbinditími heldur fjarskiptafyrirtækjum á tánum og veitir neytendum aukið frelsi. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvort gerðar hafi verið breytingar á þessu ákvæði í samræmi við athugasemdir Neytendasamtakanna og hvort hæstv. ráðherra sé sammála því að gera þurfi breytingar á þessu ákvæði.