fjarskipti .
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er rétt, þessar vangaveltur bárust og við skoðuðum þetta. Í heimildum Kóðans er heimild til 24 mánaða bindingar og við erum núna að lengja úr sex í 12 í þessari 72. gr. sem hv. þingmaður vísar í og er það binding að hámarki. Þetta er ekki lögbundin binding, þetta er binding að hámarki og er talin rétt skref í átt að þessu 24 mánaða marki sem er í Evróputilskipuninni til þess líka að geta aukið alla þá neytendavernd sem kveðið er á um annars staðar í frumvarpinu sem er gríðarlega mikilvægt skref fyrir neytendur. Við sjáum gjörbyltingu á fjarskiptamarkaði, í samkeppninni, á tækifærunum en líka í netörygginu og ógninni sem þar felst. Ég held því að það sé skýr lína að stíga þetta skref úr sex í 12, en við göngum ekki alla leið upp í 24.