152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:18]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er mikilvægt að frumvarpið fái umræðu hér í þinginu eins og það fékk á síðasta þingvetri. Ég vil ítreka stuttlega það sem kom fram í andsvari mínu áðan um að ný EES-gerð um persónuvernd í fjarskiptum er væntanleg. Við fyrirsjáanlega innleiðingu hennar mun þetta ákvæði koma til skoðunar. Hvað mögulega lengingu varðveislutímans varðar þykir rétt að bíða með þá vinnu í ljósi yfirvofandi samþykktar á þeirri reglugerð. Hún átti að vera meðfylgjandi Kóðanum en vegna ýmissa spurninga sem vöknuðu er hún væntanleg, en hún kveður á um persónuvernd í fjarskiptum. Minnast má á skýrslu hóps á vegum forsætisráðuneytisins um gagnageymdarfrumvarpið þar sem leggja átti til styttingu en slíkt myndi skerða getu við rannsókn mála. Það er mikilvægt að benda á að einungis má afhenda gögnin lögreglu og ákæruvaldi og gerð er krafa um dómsúrskurð til að fá þessi gögn, það er mjög skýrt. Varðveislan er líka háð mjög ríkum kröfum. Þau má ekki nota eða afhenda öðrum en lögreglu og ákæruvaldi. Án hennar skerðast möguleikar lögreglu, ef hún væri ekki til staðar, þar á meðal hvað varðar netárásir gegn mikilvægum innviðum samfélagsins sem eru helst nefndar í þessu samhengi. Gögnin eru ekki persónugreinanleg nema með sérstökum aðgerðum og gerðar eru stífar kröfur til þeirra starfsmanna fjarskiptafyrirtækja sem afhenda þessi gögn, m.a. bakgrunnsskoðun o.fl. Það er skýrt, þetta sem ég var búin að koma inn á með dómsúrskurðinn ef aðrir þurfa aðgang að þessum gögnum. Ég vildi bara koma hér og upplýsa um þessa tilskipun eða reglugerð varðandi persónuvernd í fjarskiptum og svo þessi atriði sem varða stöðuna í þessum málum.