fjarskipti .
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Að sjálfsögðu ætlum við ekki að standa hér með frumvarp sem í er ákvæði sem stríðir gegn mannréttindum borgaranna. Það eru ekki þær upplýsingar sem við höfum um þessa grein. Ef slíkt kemur upp í meðförum þingsins þá tek ég ekki annað í mál en að nefndin bregðist við því. Það kemur fram í umfjöllun í greinargerð, um 3. mgr. 89. gr., þar sem kveðið er á um þessa skyldu til að varðveita ákveðna lágmarksskráningu gagna, sem er óbreytt frá gildandi lögum, að þetta kom upphaflega inn að ósk ríkislögreglustjóra með breytingarlögum nr. 78/2005 en ekki í innleiðingu á tilvitnaðri tilskipun frá 15. mars 2006 sem ógilt var af Evrópudómstólnum með því máli sem hefur verið nefnt hér af hv. þingmanni sem og af hv. þingmanni í andsvari áðan. Við vitum ekki til þess að slík tölfræði sé til en ríkisstjórnin þyrfti að svara því. Það er ekki samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef að þessi gögn séu ekki gagnleg við rannsókn sakamála eða þegar upp koma netglæpir gegn innlendum stofnunum. Þetta á uppruna sinn þar en ekki beint í þessari tilskipun. Aftur á móti er mikilvægt að skoða þann dóm sem bent var á hér. Þetta er skýrt í umfjöllun í greinargerð um 3. mgr. 89. gr. en er væntanlega eitthvað sem hv. umhverfis- og samgöngunefnd mun síðan taka til skoðunar, og ég ítreka þau orð sem ég sagði hér í upphafi.