fjarskipti .
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er sannarlega svo að þetta kemur inn í íslensk lög akkúrat á sama tíma og þessi umræða er uppi í Evrópu, sem varð til innleiðingar þessarar tilskipunar. Ég átti ekki við að þetta ákvæði kæmi til vegna tilskipunarinnar heldur vegna þeirra sjónarmiða sem voru ríkjandi þá og hafa síðan verið vefengd. Ég fæ ekki séð að í greinargerð með ákvæðinu sé fjallað um dóminn en þar er reyndar vísað í greinargerð með fyrri lögum sem ég er ekki með fyrir framan mig.
Varðandi það að beðið sé um þetta ákvæði, eða að þetta ákvæði sé lagt til af hálfu ríkislögreglustjóra, þá kemur það sannarlega ekki á óvart. Það er í raun ekkert skrýtið. Þó að það sé í prinsippinu vafasamt er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við að lögregluyfirvöld biðji um frekari valdheimildir. Við höfum svo sem séð það á Íslandi sem annars staðar að þau hika sjaldnast við að biðja um frekari valdheimildir þó að kannski megi deila um gagnsemi þeirra valdheimilda og réttmæti. Það fellur því ekki síst í hlut okkar sem erum lýðræðislega kjörnir fulltrúar hér á Alþingi að tryggja að slíkar heimildir séu ekki veittar lögreglu nema búið sé að ganga algjörlega úr skugga um að þær gangi ekki gegn réttindum borgaranna. Slíkar heimildir ganga gegn réttindum borgaranna ef vægið á milli markmiðanna og þeirra réttinda sem eru skert er ekki rétt og ekki eðlileg. Þarna eru mörg grundvallarréttindi að baki og ég vona að þetta verði skoðað vandlega í þinglegri meðferð. Ég treysti því að þegar búið er að skoða þetta nánar, fara í þessa dóma og annað, komi fram tillaga um að fjarlægja þetta úr lögunum. Ég tel þetta ákvæði ekki eiga rétt á sér eins og staðan er.