152. löggjafarþing — 56. fundur,  24. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[19:27]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er gagnageymdin og 88. gr. og 89. gr. Ég hef aðeins unnið með persónuverndarlöggjöf erlendis, GDPR. Ég get ekki séð þetta öðruvísi en þannig — þetta mál varðar reyndar fjarskipti og er ekki algerlega það sama, ég tek það fram — að þessi gögn geti verið geymd hvar sem er á Evrópska efnahagssvæðinu. Það er ekkert sem bannar það og alla vega er persónuverndarlöggjöfinni þannig. Þetta er reyndar vitlaust þýtt á íslensku, það er talað um miðlun upplýsinga en það er flutningur upplýsinga, „free movement of personal data“, en ekki „dissemination“. Þetta getur verið hvar sem er á Evrópska efnahagssvæðinu. Ég get ekki séð annað en að bæði þessi ákvæði þurfi að lúta Evrópureglunum. Ég tel að Evrópudómstóllinn hafið staðið vel vörð um persónuvernd hvað varðar fjarskipti og persónugögn og bendi þar á „Safe Harbor“ og „Privacy Shield“-samninginn við Bandaríkin. En telur þingmaðurinn að Íslendingar geti sett sérlöggjöf hvað þetta varðar sem gæti stangast á við Evrópurétt og þá hvernig? Ég sé það ekki fyrir mér a.m.k. Ef ég man rétt er sérstök tilskipun varðandi persónuupplýsingar hjá lögreglu en þær lúta ekki algerlega að þessu. En alla vega 89. gr. fjallar um rannsókn sakamála og að gögn séu geymd í sex mánuði. Ég sé ekki alveg mannréttindavinkilinn út frá því að við ætlum að reyna að hafa strangari löggjöf en er í Evrópusambandinu.