Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Ágúst Bjarni Garðarsson verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur, Halldóru Mogensen og Loga Einarssyni um að þau geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Suðvest., Kristín Hermannsdóttir, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, 2. varamaður á lista Framsóknarflokksins í Norðvest., Iða Marsibil Jónsdóttir, en 1. varamaður hefur boðað forföll, 1. varamaður á lista Pírata í Reykv. n., Lenya Rún Taha Karim, og 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Norðaust., Hilda Jana Gísladóttir.
Lenya Rún Taha Karim hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.