viðbúnaður þjóðaröryggisráðs við vöruskorti.
Frú forseti. Stjórnvöld víða á Vesturlöndum ræða nú viðbrögð við efnahagslegum áhrifum innrásar Rússa í Úkraínu og aðgerða sem af henni hafa leitt, reyndar í mismiklum mæli. Biden Bandaríkjaforseti lýsti því á NATO-þingi að vænta mætti fæðuskorts á Vesturlöndum og nú er loks hafin umræða um fæðuöryggi, mál sem hefur verið okkur í mínum flokki mjög hugleikið. Vonandi fáum við núna alvöruumræðu um það.
Hver verða viðbrögð íslenskra stjórnvalda hvað þetta varðar og önnur fjölþætt áhrif þessa ástands? Til að mynda skilst mér að megnið af steypustyrktarjárni sem flutt hefur verið til landsins, yfirgnæfandi meiri hluti þess, hafi komið frá Hvíta-Rússlandi. Það mun setja strik í reikninginn varðandi byggingarmarkaðinn og hugsanlega þá fasteignaverð á Íslandi. Ég hef þegar rætt töluvert um orkumálin og mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld bregðist við hvað þau varðar með framleiðslu og leit að meiri orku en líka með því að lækka, þótt ekki væri nema tímabundið, álögur á eldsneyti. Er hæstv. forsætisráðherra tilbúin að gefa fyrirheit um slíkt? Í viðtali við Viðskiptablaðið velti Eldur Ólafsson því upp hvort ríkið ætti hugsanlega að kaupa hrávöru til að verja landið fyrir áföllum á því sviði. Hann sagðist gera ráð fyrir að þjóðaröryggisráð og ríkisstjórnin væru með skýrt plan varðandi nauðsynlega hrávöru. Hann bara gerði ráð fyrir því, það hlyti að vera.
Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra er þessi: Eru þjóðaröryggisráð og ríkisstjórnin með plan til að bregðast við þessu ástandi?