viðbúnaður þjóðaröryggisráðs við vöruskorti.
Frú forseti. Þetta er mikilvægt mál sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tekur hér upp og við því þarf að bregðast bæði til skemmri tíma og lengri tíma. Hvað varðar skammtímaviðbrögð þá stendur yfir vinna við að skilgreina nauðsynlegar birgðir í landinu, ekki bara þegar kemur að fæðuöryggi heldur líka þegar kemur að öðrum þáttum; lyfjum, íhlutum, eins og hv. þingmaður nefndi, sem skipta máli fyrir framleiðslugreinar, sem og olíu. Þetta mat fer reglulega fram en það liggur fyrir að þar erum við viðkvæmari fyrir á sumum stöðum en öðrum. Ég get nefnt sem dæmi að við sjáum okkur sjálfum einungis fyrir um 1% af því korni sem við neytum. Það er auðvitað það sem við sjáum fram á nú, að þessi innrás geti haft gríðarleg áhrif á kornframleiðslu í heiminum. Út frá birgðastöðunni eins og hún liggur fyrir er ekki endilega að vænta skorts á því sviði fyrr en á næsta ári, á árinu 2023, og höfum við þær upplýsingar frá alþjóðlegum stofnunum á þessu sviði.
Þetta vekur líka spurningar um langtímastefnu stjórnvalda. Sú ríkisstjórn sem nú situr hefur sett það á dagskrá að við viljum efla innlenda matvælaframleiðslu. Meðal þess sem þegar hefur verið gert er að auka í stuðning til garðyrkjubænda því að þar sjáum við til að mynda að við erum að flytja inn mikinn meiri hluta af mörgum þeim afurðum sem við neytum, ólíkt því sem gerist til að mynda þegar kemur að mjólkurafurðum og kjöti. Í þessu erum við að sjálfsögðu með skammtímaplan til að tryggja viðunandi birgðir í landinu en langtímastefnan á að vera sú að við séum í auknum mæli sjálfum okkur nóg þegar kemur að matvælaframleiðslu til að tryggja hér fæðuöryggi. Í því felast mikil sóknarfæri, að ég tel, fyrir Ísland, að horfa til aukinnar matvælaframleiðslu hér á landi, ekki bara fyrir okkar eigin neyslu heldur líka til útflutnings.