viðbúnaður þjóðaröryggisráðs við vöruskorti.
Frú forseti. Ég er ánægður með þá stefnu sem hæstv. forsætisráðherra lýsir hér en vandinn hefur oft verið sá að stefnunni fylgja ekki alltaf aðgerðir og því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvaða aðgerða hyggst ríkisstjórnin grípa til? Hvar stendur vinna hjá þjóðaröryggisráði við að grípa til ráðstafana hvað þetta varðar? Og þegar til að mynda er rætt um mikilvægi fæðuöryggis og aukna matvælaframleiðslu á Íslandi, sem ég tek svo sannarlega undir með hæstv. forsætisráðherra, þá kemur það ekki af sjálfu sér. Það kallar á stuðning, aukinn stuðning við íslenskan landbúnað og brotthvarf frá þeirri stefnu og þeim aðgerðum sem hafa þrengt mjög að þeirri grein á undanförnum árum. Það kallar líka á aðgerðir til að mynda á sviði orkumála. Það kallar á að dregið sé úr þessum gríðarlegu álögum sem eru á orkugjafa hér innan lands. En ég velti líka fyrir mér hvort hæstv. forsætisráðherra sé til í að a.m.k. velta því upp að íslenska ríkið kaupi hrávöru til að treysta stöðu okkar enn frekar.