viðbúnaður þjóðaröryggisráðs við vöruskorti.
Frú forseti. Þjóðaröryggisráð hefur sett af stað vinnu til að skilgreina viðmið nauðsynlegra birgða í landinu af öllum þessum þáttum sem ég nefndi hér áðan, hvort sem það eru matvæli, lyf- og lækningavörur, olía, íhlutir og fleira. Von bráðar eiga því að liggja fyrir viðmið um það hvaða birgðir teljast nauðsynlegar. Ríkisstjórnin hefur sýnt að hún er reiðubúin til að grípa til ýmissa aðgerða til að bregðast við óvæntum atburðum á borð við þá sem nú hafa orðið í Úkraínu, til að mynda þegar við settum viðbótarstuðning til áburðarkaupa vegna hækkandi áburðarverðs til þess að reyna að styðja við innlenda matvælaframleiðslu. Ég vitnaði hér áður til langtímastefnumótunar og aukins stuðnings við garðyrkjubændur sem ég tel að við megum ekki slaka á þó að við séum að grípa til skammtímaaðgerða. Þegar kemur að tilteknum efnahagslegum áhrifum af þessari kreppu sem hv. þingmaður vísar hér í hvað varðar hækkandi olíuverð þá tel ég þetta í fyrsta lagi vera hvatningu til að flýta hér enn orkuskiptum en ég tel líka mikilvægt að við mætum þessum afleiðingum (Forseti hringir.) með aðgerðum sem beinast að tilteknum hópum, ekki endilega flötum aðgerðum (Forseti hringir.)sem dreifast jafnt á alla heldur einmitt svona markmiðssettum aðgerðum.