152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[15:15]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ný skýrsla McKinseys sýnir okkur raunstöðu heilbrigðiskerfisins og þarfir þess á næstu 20 árum. Skýrslan staðfestir það sem starfsfólk heilbrigðiskerfisins, notendur þess og við í stjórnarandstöðunni höfum verið að segja á undanförnum árum um það hættuástand sem er í heilbrigðiskerfinu en ráðherrar hafa svarað því með fullyrðingum um að nóg sé gert, að það sé eitthvað að kerfi sem taki sífellt meira við og að starfsfólk verði bara að hlaupa hraðar. Helstu niðurstöður McKinsey-skýrslunnar eru að gert er ráð fyrir að eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu muni aukast um 1–1,2% á ári, einkum vegna lýðfræðilegra breytinga. Ef ekki verði gripið til stórtækra aðgerða af hálfu Landspítala og heilbrigðiskerfisins í heild er því spáð að vinnuaflsþörf muni aukast um u.þ.b. 36% og kostnaður um u.þ.b. 90%. Gert er ráð fyrir því að þörfin fyrir rými á Landspítalanum einum muni aukast um u.þ.b. 80% til ársins 2040 sem jafngildir u.þ.b. 50% fleiri rýmum en áætlað er að verði í boði þegar nýi Landspítalinn opnar eftir fjögur ár. Við í Samfylkingunni höfum kallað eftir meiri yfirsýn og að mannauður og húsakostur rekstrareininga í kerfinu öllu verði betur nýtt þannig að sóunin minnki. Það þarf að vera meira samstarf innan kerfis þannig að verkefni séu flutt af Landspítala yfir á aðrar heilbrigðisstofnanir. En nú er það svo að aðhaldskrafa ríkisstjórnarinnar skellur á heilbrigðisstofnunum um allt land sem skilar okkur því einu að þær draga úr þjónustu við sjúklinga sem enda jú á gólfinu á Landspítalanum. Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra til hvaða aðgerða hann hyggist grípa og er óskað eftir alvörusvörum, hæstv. ráðherra, ekki löngum ræðum um það hvað hefur verið gert því að augljóslega hefur það sem hefur verið gert ekki borið tilskilinn árangur.