152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[15:20]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég held að hæstv. heilbrigðisráðherra hafi ekki alveg heyrt það sem ég var að segja. En staðan er sú að ríkisstjórnin kemur með aðhaldskröfur á heilbrigðisstofnanir um allt land, líka á Landspítala. Á sama tíma og ríkisstjórnin krefst þess að heilbrigðisstofnanir dragi saman og ráði ekki fleira starfsfólk og viðhaldi ekki nauðsynlegri þjónustu heldur ríkisstjórnin heilbrigðiskerfinu í þeim heljargreipum sem verið hefur undanfarin ár. Það er ekki hægt að segja: „Við þurfum að“, en gera svo alltaf akkúrat hið gagnstæða. Hæstv. ráðherra var formaður fjárlaganefndar. Hann þekkir þetta með krónur og aura. Hann veit hvað þetta þýðir. Þegar er verið að krefjast þess að það sé dregið saman þá er ekki hægt að svara því með öðru en að fækka starfsfólki og minnka þjónustu. Þetta er einfaldlega þannig að það eru kjarasamningar í gangi en ríkisstjórnin er ekki tilbúin til að veita fjármagn sem kemur t.d. af gerðardómum (Forseti hringir.) sem féllu í kjarasamningsviðræðum hjúkrunarfræðinga. Það er ekki tekið tillit til launaþróunar (Forseti hringir.) á þessum heilbrigðisstofnunum. Ég skil ekki hvernig hæstv. ráðherra sér fyrir sér að reka grunnþjónustu um allt land með þessu áframhaldi.