152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[15:21]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni þessar spurningar. Þær eru mjög mikilvægar og snúa að fjármögnuninni og þessari takmörkuðu auðlind sem býr í mannauðnum. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni. Við þurfum að íhuga hvernig betri vinnutími er t.d. að koma út. Það er augljóst að það er ekkert að koma sérstaklega út fyrir vaktavinnustéttir í þessu samhengi. Það verður engin aðhaldskrafa á heilbrigðisstofnanir 2023 og 2024. Það er mjög mikilvægt. Ég vil hins vegar benda á það, af því að við byrjuðum á að ræða þessa skýrslu, að hún dregur mjög vel fram hvað við þurfum að bæta í þjónustunni. Að kjarna hlutverk spítalans, það þýðir hvað? Að spítalinn fái að sinna því sem hann á að vera að gera og gera það betur og nýta allan annan mannauð í kerfinu. Það er það sem þetta snýst um. (Forseti hringir.) Ég kemst ekki lengra í bili en við þyrftum að taka þessa umræðu og helst skýrsluna bara fyrir (Forseti hringir.) hér í þingsal.