152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

afglæpavæðing vörslu neysluskammta.

[15:23]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Forseti. Hæstv. innviðaráðherra ræddi við Vísi fyrir stuttu um ástæður þess að ríkisstjórnin hafi enn eina ferðina að frestað því að afgreiða gríðarlega mikilvægt mannréttindamál, afglæpavæðingu vörslu neysluskammta vímuefna. Ráðherrann sagði, með leyfi forseta:

„Það hefur verið bent á að það þurfi að vera sterkari forvarnir og fleiri úrræði til meðal annars á heilbrigðissviðinu áður en við förum til að mynda og eltum Portúgal, sem menn hafa verið að benda á.“

Ráðherrann ítrekaði síðar í viðtalinu að það væru engin úrræði tilbúin án þess þó að skýra hvaða úrræði þurfi að vera tilbúin til að hætta að refsa fólki fyrir að nota vímuefni. Þessar afsakanir hæstv. ráðherra komu mér ansi spánskt fyrir sjónir því að þær eru allt aðrar heldur en afsökunin sem hæstv. heilbrigðisráðherra og samflokksmaður hæstv. ráðherra kom með, sem var sú að starfshópurinn sem hann skipaði þyrfti einfaldlega meiri tíma til að vinna betur að ýmsum skilgreiningum og ákvæðum í frumvarpinu. Hvergi minntist hann á skort á meðferðarúrræðum. Þegar mál Pírata um afglæpavæðingu var fellt, m.a. af öllum þingmönnum Framsóknarflokksins, árið 2020 var því haldið fram af hálfu flokksins að flokkurinn styddi afglæpavæðingu en ekki núna vegna þess að þetta mál Pírata væri ekki nógu vandað. Þegar fyrrverandi heilbrigðisráðherra lagði svo fram sambærilegt mál og okkar þá strandaði það í nefnd fyrir ári síðan og núna heyrum við afsakanir í allar áttir um hvers vegna enn og aftur eigi að viðhalda refsistefnu sem allir virðast þó sammála um að sé skaðleg og hafi mistekist. Enn og aftur skal einn viðkvæmasti hópur landsins bíða eftir réttarbót.

Spurning mín til hæstv. ráðherra er einföld: Er ekki bara best, er ekki bara heiðarlegast að hætta þessum fyrirslætti og viðurkenna einfaldlega að þessi ríkisstjórn mun aldrei afglæpavæða neysluskammta?