152. löggjafarþing — 57. fundur,  28. mars 2022.

afglæpavæðing vörslu neysluskammta.

[15:25]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda spurninguna. Ég held að svarið við spurningunni sé: Nei, það er, held ég, óþarfi að vera með slíkar yfirlýsingar. Nú er sá sem hér stendur ekki heilbrigðisráðherra og ekki sérfræðingur á þessu sviði. Engu að síður var ég spurður af fréttamanni þannig að eitthvað hefur nú gengið eftir í þessum heimi upp á síðkastið, þ.e. málið er á einhverri dagskrá. Menn vilja ræða það, ekki bara í eldhúskrókum og á vinnustöðum heldur líka í fjölmiðlum. Og þetta var ein af þeim fjölmörgu spurningum sem fréttamaðurinn spurði mig um.

Satt best að segja kynnti ég mér málið fyrir nokkru og hef verið á þeirri skoðun að það sé margt áhugavert sem gerðist í Portúgal. Maður mér tengdur skrifaði lokaritgerð sína um þetta mál uppi í háskóla og komst að þeirri niðurstöðu, var mjög jákvæður gagnvart því að afglæpavæða — eftir að hafa hins vegar talað við nokkra aðila sem voru að vinna í feltinu, m.a. við sérfræðinga sem vinna að því að finna ungmenni sem glatast, komst viðkomandi einstaklingur að þeirri niðurstöðu að úrræðin sem hér væru í boði væru ekki næg, þau væru færri og ekki eins góð og buðust í Portúgal. Niðurstaða þessarar skýrslu uppi í Háskóla Íslands var sú að þetta væri ekki tímabært. Ég las þessa skýrslu, þessa grein. Mér fannst hún áhugaverð og þarna svaraði ég af bestu vitneskju minni um málið, verandi ekki heilbrigðisráðherra. Ég styð hins vegar heilbrigðisráðherra hundrað prósent. Hann dró mál til baka vegna þess að sagt var að það væri skortur á samráði. Hann segir um þetta mál að hann vilji láta skoða þetta betur, fá meira samráð, og það er góður hlutur. (Forseti hringir.) Mér hefði hins vegar þótt það dálítið þunnt að svara fréttamanninum þannig en það er nokkuð augljóst að ég styð ráðherra heilbrigðismála í þeim verkum.